Seyluhreppur

Seyluhreppur

Seyluhreppur er forn hreppur sem er hluti af sveitarfélaginu Skagafirði í dag. Hann er staðsettur vestan Héraðsvatna í Skagafjarðarsýslu og kenndur við bæinn Stóru-Seylu á Langholti, sem var þingstaður hreppsins.[1]

Til hreppsins töldust fjögur byggðarlög, Langholt, Vallhólmur, Víðimýrarhverfi og Skörð, en einnig Fjall, Geldingaholt og Húsabakkabæirnir, sem ekki töldust tilheyra neinu þessara byggðarlaga. Byggðin er breið og áttu aðeins sex bæir í hreppnum land til fjalls. Hreppurinn var allur í Glaumbæjarsókn en þar eru tvær kirkjur, í Glaumbæ og á Víðimýri. Fyrr á öldum var einnig kirkja í Geldingaholti.[2]

Aðalatvinnuvegur hreppsbúa var lengst af landbúnaður en nokkru fyrir miðja 20. öld byggðist upp dálítill þéttbýliskjarni í Varmahlíð og starfa íbúar þar flestir við verslun og þjónustu af ýmsu tagi. Þar er skóli, félagsheimili, hótel og sundlaug, auk verslunar og annarrar þjónustustarfsemi.[3] Við sameininguna bjuggu 303 íbúar í hreppnum, þar af 125 í Varmahlíð.[4]

Hinn 6. júní 1998 sameinaðist hreppurinn 10 öðrum sveitarfélögum í Skagafirði: Skefilsstaðahreppi, Sauðárkrókskaupstað, Skarðshreppi, Staðarhreppi, Lýtingsstaðahreppi, Rípurhreppi, Viðvíkurhreppi, Hólahreppi, Hofshreppi og Fljótahreppi, og mynduðu þau saman sveitarfélagið Skagafjörð.[5]

  1. „Seyluhreppur: Skjalasafn - HSk“. atom.skagafjordur.is. Sótt 8. júní 2024.
  2. „Seyluhreppur - HSk“. atom.skagafjordur.is. Sótt 8. júní 2024.
  3. Birgir (7. febrúar 2017). „Varmahlid“. NAT (bandarísk enska). Sótt 8. júní 2024.
  4. „Varmahlid Destination Guide (Northwest, Iceland) - Trip-Suggest“. trip-suggest.com. Sótt 8. júní 2024.
  5. „Staðarhreppur: Skjalasafn - HSk“. atom.skagafjordur.is. Sótt 8. júní 2024.

© MMXXIII Rich X Search. We shall prevail. All rights reserved. Rich X Search